image description
Staðnám

Skráning - LED lýsing

IÐAN fræðslusetur bíður uppá námskeið í LED lýsingum í samvinnu við Rafmennt, Stórhöfða 27. Á námskeiðinu verður farið ítarlega í þá ljóstæknilegu þætti sem hafa þarf í huga við val á LED ljósgjöfum s.s ljósmagn, litarhitastig og litarendurgjöf. Einnig verður farið yfir hvað skal hafa í huga þegar LED er valið í ákveðin rými eins og verslanir, skóla, skrifstofur, heimili, útilýsingu, söfn, íþróttahús o.fl. Boðið verður upp á sýnikennslu og líflegar umræður þar sem algengum spurningum um LED verður reynt að svara, líkt og: Hvað er góður líftími á LED? Hvað er “human centric lighting”? Heldur blátt ljós fyrir mér vöku? Hvernig myndast flökt? Hvað er “constant light output”? Gera LED ljós Trump appelsínugulan? Hvaða Watt á LED peru á ég að velja eða hversu mörg lúmen? Hvaða ljóslit á ég að velja í rými? Hvernig sjáum við ljós? Hvað er TM-30-15? Hvernig dimma ég LED? Hvað er IoT? Er LED framtíðarljósgjafinn?

Þátttakandi
Upplýsingar um greiðslu
Verð: 31200 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 10920 kr.

Upplýsingar um greiðanda

Skilmálar

IÐAN áskilur sér rétt til að innheimta helming af námskeiðsgjaldi ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið en tilkynnir ekki forföll til IÐUNNAR á netfangið idan@idan.is eða í síma 590 6400 að minnsta kosti 24 klukkustundum áður en námskeið hefst.

* Nauðsynlegar upplýsingar

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband