Staðnám (fjarnám í boði)
Skráning - Frágangur og skoðun prentskjala
Hönnuðir þurfa að skila prentgögnum sem prenthæfum PDF-skjölum við prentun. Því miður er oft misbrestur á frágangi slíkra skjala með tilheyrandi aukakostnað og töfum í framleiðslu. Á þessu námskeiði er farið í gegnum atriði til að nálgast á endanum fullbúið skjal til prentunar. Algeng mistök í skilum á prentefni og hvernig má koma í veg fyrir þau. Þá er í hverjum þætti námskeiðsins farið yfir góð samskipti við viðskiptavini. Tveir sérfræðingar koma að námskeiðinu með sérþekkingu á sínu sviði þegar kemur að frágangi prentgagna enda eru áherslur misjafnar eftir því um hvers konar prentgrip er að ræða.