Staðnám
Skráning - Durisol byggingarkubbar
Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja læra að byggja hús ur Durisol kubbum. Tilgangur þess er að kynna þessa nýjung á Íslandi sem á að baki 80 ára reynslu víða um heim. Fjallað verður um gerð og framleiðslu kubbanna sem eru vistvænir og eru framleiddir að mestu úr endurunnu efni. Farið verður í ýmsa eiginleika eins og brunaþol, þol gagnvart raka og myglu, hljóðvist og einangrunargildi. Fjallað verður um aðferðir við byggingu húsa úr kubbunum og kynntur kostnaður. Verklegi hluti námskeiðsins er í höndum Eggerts Snorra Guðmundssonar húsasmiðs, en þar gefst þátttakendum færi á að meðhöndla kubbana og fara yfir praktískar útfærslur á byggingarstað. Námskeiðið er haldið í samvinnu við PAGO HÚS ehf. (www.pago.is).