image description
Fjarnám

Skráning - Öryggistrúnaðarmenn og -verðir

Á námskeiðinu er farið yfir alla helstu málaflokka sem varða vinnuumhverfi starfsmanna s.s. hávaða, lýsingu, inniloft og loftræstingu innanhúss, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti heilsuvernd á vinnustað, vinnuslys og slysavarnir og notkun persónuhlífa. Vinnuverndarlögin (46/1980) eru kynnt sem og reglur sem settar eru í samræmi við þau. Auk þess er fjallað um hvernig haga skuli gerð áhættumats en árið 2003 voru sett inn í vinnuverndarlögin (46/1980) ákvæði um að atvinnurekandi beri ábyrgð á að gert sé sérstakt skriflegt áhættumat þar sem áhætta í starfi, með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna, er metin. Einnig gefst þátttakendum kostur á að kynna sér fræðsluefni sem Vinnueftirlitið hefur gefið út en það nýtist vel í störfum öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða.

Þátttakandi
Upplýsingar um greiðslu
Verð: 42700 kr.
Verð til aðila IÐUNNAR: 8000 kr.

Upplýsingar um greiðanda

Skilmálar

IÐAN áskilur sér rétt til að innheimta helming af námskeiðsgjaldi ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið en tilkynnir ekki forföll til IÐUNNAR á netfangið idan@idan.is eða í síma 590 6400 að minnsta kosti 24 klukkustundum áður en námskeið hefst.

* Nauðsynlegar upplýsingar

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband