Staðnám
Skráning - Stafræn prentun - prentarar
Hér er á ferðinni námskeið sem er ætlað prenturum. Stafræn prentun hefur aukist mikið á síðustu árum og gæðin sífellt betri. Tæknin er talsvert ólík offsettækninni og því mikilvægt fyrir starfandi prentara að kynna sér hana. Þorgeir Valur Ellertsson leiðir þátttakendur í gegnum helstu aðferðir sem notaðar eru og hvað þarf að hafa í huga við vinnslu og undirbúning verka. Námskeiðið er bæði verklegt og fræðilegt þar sem þátttakendur fá að spreyta sig á því að prenta á stafræna prentvél.