Staðnám
Skráning - Stafræn prentun - prentarar
Hér er á ferðinni námskeið sem er ætlað prenturum. Stafræn prentun hefur aukist mikið á síðustu árum og er ekki útlit fyrir að hún minnki. Þessi tækni er talsvert ólík offsettækninni og því mikilvægt fyrir starfandi prentara að kynna sér hana. Farið verður í gegnum helstu aðferðir sem notaðar eru og hvað þarf að hafa í huga við vinnslu og undirbúning verka. Námskeiðið er bæði verklegt og fræðilegt þar sem þátttakendur fá að spreyta sig á því að prenta á stafræna prentvél. Þann 16.mars er kennt í IÐUNNI í Vatnagörðum. Þann 18. mars 15:00 - 17:00 fer verkleg kennsla fram í Pixel og þann 18. mars 17:00 - 19:00 er verkleg kennsla í Svansprenti.