Staðnám
Skráning - IMI Rafbílanámskeið á þrepi 2.1 - Aðkoma neyðaraðila að raf og tvinnbílum, mat og greining á hættu
Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem í starfi sínu geta þurft að eiga við raf- eða tvinn bíla skömmu eftir árekstur eða bilun á vegum úti s.s. neyðaraðilar (Slökkvilið og Lögregla), starfsmenn dráttaþjónustu aðila og björgunarsveitir. Námskeiðið gefur þátttakendum þá þekkingu sem til þarf svo hægt sé að vinna á öruggan hátt í kringum þessa bíla og háspennukerfi þeirra. Námskeiðið er vottað af Institute of the Motor Industry (IMI) í Bretlandi og lýkur með vef og munleguprófi.