Staðnám
Skráning - Loftun byggingarhluta
Þetta námskeið er fyrir þá sem vinna við frágang byggingarhluta sem mynda ytra byrði húsa s.s. þaka og útveggja. Markmið þess er að fræða þátttakendur um loftun byggingarhluta og hlutverk hennar við að hindra myndun raka og myglu. Fjallað er um raka í byggingum og byggingarefnum og farið í gegnum deililausnir í mismunandi gerðum bygginga og byggingarhluta.