Staðnám

Kælitækni mat og vottun

Vélstjórar - málmtæknimenn

Að loknu námskeiðinu þekkir þú Kyoto og Montreal  bókanirnar. Farið er í uppbyggingu kæli- og frystikerfa, helstu íhluti þeirra, tákn og táknmyndir, mælabrettið og notkun þess, mengunarhættu frá kælikerfum ásamt gildandi reglugerðum um kælimiðla, áhrif yfirhitunar og undirkælingar kælimiðils. Þá verður farið í áfyllingu kælimiðils og endurheimt kælimiðils.  Skipt verður um smurolíu á kælipressum á öruggan hátt. Með þessa þekkingu að vopni geturðu bilanaleitað kælikerfi, leitað að leka, stillt há- og lágþrýstiliða, afhrímað kerfið, stillt yfirhitun og undirkælingu, bætt á og tæmt kerfi af kælimiðli og smurolíu. Nemandi veit í lok yfirferðar hvað má og hvað má ekki varðandi flúoraða kælimiðla. Lóðningar eru kenndar og farið yfir hvernig á að slaglóða á öruggan hátt.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband