Staðnám (fjarnám í boði)

Svansvottaðar byggingar

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara, byggingarstjóra og aðra sem ætla að byggja eða gerast ábyrgðarmenn Svansvottaðra bygginga. Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um ferlið og hvað þarf að gera til þess að fá byggingu Svansvottaða.

Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og íbúa byggingarinnar á notkunartíma.

Fjallað verður um hugmyndafræði Svansvottunar og viðmiðin sem fela í sér hvað er hægt að votta, skyldukröfur, valkröfur, efnissamþykktir, utanumhald gagna, gæða- og verkferla, úttektir og fleira. Einnig verður farið sérstaklega yfir hlutverk ábyrgðarmanna Svansvottunar.

Farið verður í gegnum byggingarferli Svansvottaðrar byggingar og hvaða gögn þurfa liggja fyrir við upphaf framkvæmda. Fjallað er um hvernig staðið er að framkvæmdum og hlutverk þeirra sem koma að þeim. Síðan hvaða gögnum ábyrgðaraðili þarf að safna á framkvæmdatíma og leggja inn til vottunar þegar byggingunni er lokið. 

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Svaninn á Íslandi.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband