Staðnám (fjarnám í boði)

Frágangur og skoðun prentskjala

hönnuðir, prentsmiðir, umbúðahönnuðir, umbrotsfólk

Hönnuðir þurfa að skila prentgögnum sem prenthæfum PDF-skjölum við prentun. Því miður er oft misbrestur á frágangi slíkra skjala með tilheyrandi aukakostnað og töfum í framleiðslu. Á þessu námskeiði er farið í gegnum atriði til að nálgast á endanum fullbúið skjal til prentunar. Algeng mistök í skilum á prentefni og hvernig má koma í veg fyrir þau. Þá er í hverjum þætti námskeiðsins farið yfir góð samskipti við viðskiptavini. Þrír sérfræðingar koma að námskeiðinu, allir með sérþekkingu á sínu sviði þegar kemur að frágangi prentgagna enda eru áherslur misjafnar eftir því um hvers konar prentgrip er að ræða.

 

 Farið verður í eftirfarandi þætti: 


Undirbúningur á prentverki og skoðun gagna. Grunnatriðin.
Áhersluatriði við frágang á umbúðum til prentunar.
Litir mynda, áhrif pappírs á liti, upplausn mynda, litablöndur, lakk og sérlitir.
Skilgreiningar á stansateikningum, upphleypingum, lökkun og fleira.
Lokaskoðun prentgagna. Hvað þarf að hafa í huga? Er verkið í samræmi við fyrirliggjandi kostnaðaráætlun. Hvernig á að hátta samskiptum við viðskiptavini til að byggja upp traust og tryggja farsæla framleiðslu.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband