Staðnám
Öryggisskynjarar bifreiða (ADAS) - TEXA
Bifreiðasmiðir - Bifvélavirkjar - Bílamálarar
Bílar nútímans eru sífellt að verða betur búnir til að aðstoða ökumanninn við akstur. Með tilkomu hina ýmsu skynjara og hugbúnaðar geta bílar skynjað umhverfið sitt og gripið til aðgerða ef hætta er á ferð. Þessi kerfi kallast ADAS (Advanced driver-assistance system) eða Active safety systems.
Farið verður yfir þá skynjara sem komnir eru í bifreiðar til að auka öryggi bæði farþega og vegfarenda og hvað þurfi að hafa í huga þegar átt er við þá t.d. vegna rúðuskipta eða eftir árekstra.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Málningavörur og TEXA. Námskeiðið er kennt á ensku