Kælitækni mat og vottun
Vélstjórar - málmtæknimenn
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Að loknu námskeiðinu þekkir þú Kyoto og Montreal bókanirnar. Einnig verður farið í uppbyggingu kæli- og frystikerfa, helstu íhluti þeirra, tákn og táknmyndir, mælabrettið og notkun þess, mengunarhættu frá kælikerfum ásamt gildandi reglugerðum um kælimiðla, áhrif yfirhitunar og undirkælingar kælimiðils. Þá verður farið í áfyllingu kælimiðils og endurheimt kælimiðils. Skipt verður um smurolíu á kælipressum á öruggan hátt. Með þessa þekkingu að vopni geturðu bilanaleitað kælikerfi, leitað að leka, stillt há- og lágþrýstiliða, afhrímað, skipt, þurrkara og sjónglös, stillt yfirhitun og undirkælingu, bætt á og tæmt kerfi af kælimiðli og smurolíu og einnig bætt á. Hvað má og hvað má ekki varðandi flúoraða kælimiðla. Þá verður farið lóðningar og hvernig á að slaglóða á öruggan hátt
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
10.08.2022 | mið. | 09:00 | 16:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
11.08.2022 | fim. | 09:00 | 16:00 | Ekki skráð |
12.08.2022 | fös. | 09:00 | 16:00 | Ekki skráð |
13.08.2022 | lau. | 09:00 | 16:00 | Ekki skráð |
15.08.2022 | mán. | 09:00 | 16:00 | Ekki skráð |