Staðnám

Húsveitugrindur og stjórngrindur

Pípulagningamenn

Þetta námskeið er fyrir pípulagningamenn og aðra fagaðila í vatnslagnaiðnaði.  Fjallað er um tæknilega tengiskilmála hita- og vatnsveitna og staðbundin tengiskilyrði.  Farið er yfir húsveitugrindur veitna og hlutverk þeirra, einnig stjórngrindur fyrir lagnakerfi húsa og forsendur fyrir hönnun þeirra. Farið er yfir lagnaframkvæmd, frágang og umhirðu stjórngrinda.  Einnig er fjallað um gæðakerfi og hlutverk þeirra. 

Hlutverk þessa námskeið er einnig að efla samskipti og samstarf faghópa og auka skilning þeirra á hlutverki hvers annars.  Fyrir utan pípulagningamenn og meistara má þar nefna  rekstaraðila veitna, hönnuði, tæknimenn sveitarfélaga, byggingarfulltrúa og byggingarstjóra.  

 


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband