Staðnám (fjarnám í boði)
Hreyfihönnun fyrir alla-grunnur í After Effects
Hönnuðir, prentsmiðir, listamenn, stjórnendur markaðsstarfs, umbrotsmenn, blaðamenn
Grunnatriði í gerð hreyfimynda með After Effects. Nemendur læra að hanna einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum.
Kennari: Steinar Júlíusson er reynslumikill og farsæll hreyfihönnuður. Hann hefur starfað fyrir H&M, Acne Stockholm, Unicef á Íslandi, Borgarleikhúsið og Absolut Vodka. Steinar hefur áður kennt við LHÍ og hinn virta Berghs School of Communication.