Staðnám

Sveppir og sveppatínsla

Opið námskeið

Markmið námskeiðsins er að auka fræðslu um sveppi sem vaxa hér á landi og henta í matargerð, eins er fjallað um það hvaða sveppir henta ekki. Námskeiðið skiptist í tvennt. Í fyrri hluta er fyrirlestur og sýnikennsla í greiningu og frágangi á sveppum en í seinni hlutanum er farið út í skóglendi í verklega kennslu. Þátttakendur fá aðstoð og kennslu við að tína matarsveppi. Fjallað er um helstu geymsluaðferðir sveppa og nýtingarmöguleika. Þátttakendur velja klæðnað sem hentar veðri, taka með sér fötur/körfur til að tína sveppina í, heppilegan hníf fyrir hreinsun og ílát fyrir uppskeruna til að taka með heim. Námskeiðið er haldið í samstarfi við endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands https://endurmenntun.lbhi.is/sveppir/


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband