Fjarnám

SharePoint - verkbókhald og gæðakerfi - kynning

Þetta er kynning á námskeiðinu "SharePoint, hönnun og smíði á verkbókhaldi og gæðakerfi" sem er 16 klukkustunda námskeið sem haldið er í fjórum lotum með viku millibili. Námskeiðið verður kennt á næstu önn í staðnámi ef aðstæður leyfa en annars í fjarnámi. 

Námskeiðið "SharePoint, hönnun og smíði á verkbókhaldi og gæðakerfi" er ætlað fyrir þá sem hafa aðgang að SharePoint á Office 365 til að smíða síður og undirsíður, setja inn og breyta viðeigandi smáforritum. Kennt verður lið fyrir lið að hanna og setja upp m.a. gæðahandbók, svæði fyrir verkmöppur, rafrænar dagbækur, verkbókhald, tímskráningarkerfi, verkfærabókhald, rafrænar skýrslur fyrir aukaverk, breytingar og frábrigði. Hver og einn þáttakandi hannar og aðlagar kerfið að eigin þörfum. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að hafa útbúið öflugt rekstrar- og verkefnasvæði og geta haldið áfram að þróa það eftir þörfum.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband