Staðnám

Inndælingar í óþéttar sprungur og plötuskil

Byggingamenn

Þetta er námskeið fyrir þá sem vinna við þéttingar og viðhald eða hanna verk og útboðslýsingar eða vilja þá kynna sér rétt vinnbrögð og efnisval við inndælingar gegnum inndælingarventla í óþéttar sprungur, hreiður og steypuskil. Sérfræðingur
Arcan Waterproofing mun kynna mismundandi tegundir inndælingarefna og hvar þau eiga við. Farið verður yfir rétt vinnubrögð við borun og staðsetningu inndælingarventla og fleira sem tengist slíkri vinnu. Einnig verður farið yfir ný efni og aðferðir til að gera við sprungur í steyptum og múruðum útveggjum. Farið verður yfir frágang á inndælingaslöngum í steypumótum og hvaða efni má nota í þær og hvað ekki. Námskeiðið fer fram á ensku en sérfræðingar Múrefna ehf eru einnig á staðnum til halds og trausts.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband