Mannauðsstjórnun
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og stjórnendur fyrirtækja. Markmið þess er að að kenna undirstöðuatriði í mannauðsstjórnun og gera þátttakendum grein fyrir mikilvægi mannauðsstjórnunar sem hluta af rekstri fyrirtækja. Einnig að styrkja stjórnendur í því ábyrgðarhlutverki að vera með mannaforráð. Áhersla er lögð á að gera þátttakendum kleift að yfirfæra það sem kennt er á dagleg störf. Fjallað er um verkefni og þroskastig, stefnumótun og mannauðsstefnu. Einnig breytingastjórnun, vinnustaðamenningu og hlutverk stjórnandans og leiðtogans. Farið er yfir stjórnun, aðferðir og áhrif og mannlega þáttinn varðandi samskipti og erfið starfsmannamál. Einnig um skipulag og árangur í starfi, starfsþróun, fræðslu og þjálfun. Fjallað er um móttöka nýliða, starfsánægju og hvatningu, starfsgreiningar og starfslýsingar. Farið er yfir ráðningar, starfsmannaveltu og starfsmanna-, launa- og frammistöðusamtöl.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
10.10.2019 | fim. | 13:00 | 17:00 | ÍSÍ húsið, Laugardal |
17.10.2019 | fim. | 13:00 | 17:00 | ÍSÍ húsið, Laugardal |
24.10.2019 | fim. | 13:00 | 17:00 | ÍSÍ húsið, Laugardal |
31.10.2019 | fim. | 13:00 | 17:00 | ÍSÍ húsið, Laugardal |