Staðnám

Áfram ég, sex lyklar að velgengni

Byggingamenn

Þetta er námskeið sem miðar að því að gera þátttakendur hæfari í að koma sér á framfæri og greina stöðu sína sem einstaklinga og gera þeim kleift að tileinka sér ákveðna hugsun, hegðun og leiðir til að efla sig sem persónur. Markmið þess er að efla, þroska og bæta árangur einstaklingsins í lífi og starfi. Kenndar eru ákveðnar aðferðir sem hjálpa þátttakendum að finna og nýta styrkleika sína.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að styrkja þátttakendur í sex lykilskrefum á leið þeirra til aukinnar velgengni í lífinu.

  1. Samskipti. Í samskiptum er sjálfsmeðvitund mikilvæg, að gefa sér tíma, hlusta, hrósa og gagnrýna á uppbyggilegan hátt og semja þannig að allir gangi sáttir frá borði. Unnið með: Samskiptaform, samningatækni, áhrif og mikilvægi hegðunar í samskiptum.
  2. Markmiðasetning. Til að ná árangri þarf að skipuleggja sig og setja sér markmið. Hvernig geri ég betur? Unnið með: DUMB aðferðafræðina, 80/20% regluna, tímastjórnun, aga og vilja. Leiðin út úr fullkomnunaráráttunni.
  3. Sjálfsefling. Ferðalag með fyrirheit þar sem vilji og agi kallast á og skila þér á áfangastað. Unnið með: Styrkleika, sjálfstraust, áskoranir og þroskaferli.
  4. Fjármál. Þarf ég að vera fátækur ef ég verð ekki ríkur? Unnið með: Viðhorf til peninga, yfirsýn, skipulag, markmið.
  5. Heilsa. Góð andleg og líkamleg heilsa er grunnurinn að því að geta gert það sem ég vil í lífinu. Unnið með: Mataræði, hreyfingu, hugarfar og hamingju.
  6. Framkoma. Góð og örugg framkoma lætur mér líða betur í eigin skinni, styrkir mig sem einstakling og hvetur fólk til liðs við mig. Unnið með: Grunnatriði í framkomu og öðlast kjark til að tjá mig fyrir framan fólk.

Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum, umræðum, samræðum, myndbrotum og verkefnum milli tíma auk lokaverkefnis.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband