Staðnám
EPDM Hertalan þakdúkar
Þetta námskeið er fyrir húsasmiði og aðra sem vinna við frágang þakdúka á byggingar. Tilgangur þess er að kenna þátttakendum frágang á EPDM Hertalan þakdúkum, sérstaklega við inn- og úthorn og við niðurföll og lofttúður. Leiðbeinendur eru John Whittaker, sölustjóri og Stewart Orton tækniráðgjafi frá Carlisle Construction Materials Ltd. í Bretlandi. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Redder ehf.
Nánari upplýsingar um efnið má nálgast hér: https://www.hertalan.co.uk/
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráið þátttakanda sem greiðanda en ekki verður innheimt námskeiðsgjald.