Staðnám
Proclima gluggaþéttingar, raka- vind- og vatnsvarnarlög
Byggingamenn
Þetta námskeið er fyrir fagmenn í byggingariðnaði sem vilja kynna sér nýjustu lausnir Proclima við þéttingu glugga og frágang raka- vind- og vatnsvarnarlaga. Christoph Böhringer umsjónamaður gæðaprófana og tæknistjóri hjá Proclima í Þýskalandi mun kynna fyrir þátttakendum allt það nýjasta sem í boði er í þéttiefnum frá þeim. Á námskeiðinu verða tekin fyrir flest þau efni sem Proclima býður uppá ásamt því að kennt verður rétta handbragðið við lagningu þéttiefnanna.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Redder ehf og er öllum opið, þátttakendum að kostnaðarlausu.