Suðusmiðja - TIG suða, fínsuða í rústfríu stáli, áli og svörtu járni
Markmiðið er að nemendur afli sér færni í að rafsjóða með TIG- suðu samkvæmt suðuferils lýsingum sem byggja á reglum EWF.
Nemandi sem lokið hefur suðusmiðju í TIG- suðu:
· Er fær um að sjóða flestar suður í kverk og plötu.
· Hefur þá þekkingu sem nauðsynleg er til að vinna sjálfstætt eftir suðuferils lýsingu með TIG- suðu í flestum suðustöðum í kverk og plötu. Einnig öðlast hann nægilega færni, leikni og öryggi í vinnubrögðum til að vera gjaldgengur á vinnumarkaði sem TIG- suðumaður til almennra starfa.
· Veit hvar TIG- suða er einkum notuð í iðnaði, þekkir kosti hennar og takmarkanir, stöðlun og flokkun.
· Hefur tileinkað sér megin atriði heilsuverndar og öryggismála, þekkir örugg vinnubrögð á verkstæði sem og á byggingarstað eða vinnusvæði undir berum himni.
Hver þátttakandi smíðar sér kolagrill sem hann fær til eignar í lok smiðju.