Staðnám

Lean fyrir verkstæði - Akureyri

Bifvélavirkjar-Bifreiðasmiðir-Bílamálarar

Lean Management (straumlínustjórnun) á rætur sínar að rekja úr bílaiðnaðinum, nánar tiltekið úr stjórnkerfi Toyota. Toyota fann upp nýjar aðferðir til að bæta framleiðslu og stjórnun en virði viðskiptarvinarins var ávallt haft að leiðarljósi. Í um 40 ár hafa fyrirtæki um allan heim verið að tileinka sér aðferðir Toyota til að auka framleiðni, sveigjanleika, flæði framleiðslunnar og til að bæta þjónustuna tilviðskiptavina. Afrakstur vinnunnar er ávallt veruleg lækkun á kostnaði.

Lýsing:

Farið verður yfir grunnatriðin í Lean ásamt helstu aðferðum sem fyrirtæki nýta sér til að bæta reksturinn. Tekin vera dæmi frá verkstæðum sem og öðrum fyrirtækjumsem hafa nýtt sér aðferðir Lean á árangursríkan hátt. Námskeiðið er 2 hlutar (3 klst í senn):

  • Fyrri hlutinn - Farið yfir grunnatriði í Lean ásamt helstu aðferðum. Þátttakendur fá heimaverkefni til að leysa á verkstæðinu hjá sér.  
  • Seinni hlutinn - Farið er dýpra í aðferðir Lean og hvernig það nýtist verkstæðum best. Þátttakendur kynna afrakstur heimaverkefnisins fyrir öðrum þátttakendum og fá þannig fleiri hugmyndir um notkunina.

Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist grunnþekkingu á Lean og geti gert sér hugarlund um hvernig Lean nýtist til að gera úrbætur á vinnustaðnum.  


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband