Staðnám

Lean fyrir verkstæði

Bifvélavirkjar-Bifreiðasmiðir-Bílamálarar

Lean Management (straumlínustjórnun) á rætur sínar að rekja úr bílaiðnaðinum, nánar tiltekið úr stjórnkerfi Toyota. Toyota fann upp nýjar aðferðir til að bæta framleiðslu og stjórnun en virði viðskiptarvinarins var ávallt haft að leiðarljósi. Í um 40 ár hafa fyrirtæki um allan heim verið að tileinka sér aðferðir Toyota til að auka framleiðni, sveigjanleika, flæði framleiðslunnar og til að bæta þjónustuna til viðskiptavina. Afrakstur vinnunnar er ávallt veruleg lækkun á kostnaði.

Lýsing:

Farið verður yfir grunnatriðin í Lean ásamt helstu aðferðum sem fyrirtæki nýta sér til að bæta reksturinn. Tekin vera dæmi frá verkstæðum sem og öðrum fyrirtækjumsem hafa nýtt sér aðferðir Lean á árangursríkan hátt. Námskeiðið er 2 dagar (3 klst í senn):

  • Fyrri dagurinn - Farið yfir grunnatriði í Lean ásamt helstu aðferðum. Þátttakendur fá heimaverkefni til að leysa á verkstæðinu hjá sér.
  • Seinni dagurinn - Farið er dýpra í aðferðir Lean og hvernig það nýtist verkstæðum best. Þátttakendur kynna afrakstur heimaverkefnisins fyrir öðrum þátttakendum og fá þannig fleiri hugmyndir um notkunina.

Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist grunnþekkingu á Lean og geti gert sér hugarlund um hvernig Lean nýtist til að gera úrbætur á vinnustaðnum.  


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband