Staðnám (fjarnám í boði)

Löggilding bifreiðasala

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!

Bifreiðasalar eru fagmenn sem þurfa að hafa yfirgripsmikla þekkingu á ólíkum sviðum mannlífsins, allt frá mannlegum samskiptum upp í viðskipta- og lagagrunn. Námskeiðið sem hér er í boði tekur á öllum þeim þáttum sem skipta bifreiðasala máli og meira til. Farið er yfir lög og reglugerðir sem gilda um bílasala, kaupa- og samningarétt, veðrétt lausafjármuna, þinglýsingar, viðskiptabréfareglur, vátryggingar ökutækja, opinber gjöld af ökutækjum og reglur um virðisaukaskattsbifreiðar. Þá er farið yfir reglur um skráningu ökutækja, skoðun o.fl., mat á ástandi og verðmæti ökutækja, almenna ráðgjöf sem og fjármálalega ráðgjöf við kaupendur ásamt sölu- og samningatækni.

Samningur milli Prófnefndar bifreiðasala og IÐUNNAR kveður á um að IÐAN annist námskeiðahald og próf fyrir bifreiðasala samkvæmt lögum og reglum sem um þau gilda.

Ath.: Námskeiðið er greitt fyrirfram.

Nánari upplýsingar gefur sviðsstjóri bílgreinasviðs.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
03.09.2018mán.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
04.09.2018þri.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
05.09.2018mið.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
06.09.2018fim.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
10.09.2018mán.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
11.09.2018þri.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
12.09.2018mið.08:1512:15IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
14.09.2018fös.09:0013:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
17.09.2018mán.09:0013:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
18.09.2018þri.09:0013:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
19.09.2018mið.09:0013:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
24.09.2018mán.08:3011:30IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband