Keppni matreiðslu- og framreiðslunema
Þriðjudaginn 24. október 2023 verður haldin keppni matreiðslu- og framreiðslunema. Skila þarf umsókn til Matvæla- og veitingagreina Iðunnar með því að fylla út formið hér að neðan. Umsóknarfrestur er til 15. október.
Tveir stigahæstu einstaklingarnir í matreiðslu og framreiðslu munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem verður haldin í Helsinki í apríl 2024.
Keppendur sem unnið hafa keppnina áður hafa ekki keppnisrétt í Helsinki.
Keppnin í matreiðslu skiptist í tvo hluta:
- skriflegt próf
- verklegan hluta þar sem verkefnið er að matreiða klassískan forrétt og aðalrétt
Keppnin í framreiðslu skiptist í:
- skriflegt próf
- blöndun drykkja – tveir drykkir
- uppsetning á kvöldverðarborði ásamt blómum, fjórir réttir fyrir tvo gesti
- vínpörun við matseðil
- eldsteiking
- fjögur servíettubrot
Keppendur hafa ekki aðgang að hjálpargögnum við úrlausn verkefna.
Keppendur mega ekki vera eldri en 23 ára á árinu 2023 og þurfa að vera á námssamningi þegar Norræna nemakeppnin fer fram. Allar nánari upplýsingar gefur Steinn Óskar Sigurðsson, leiðtogi matvæla og veitingagreina hjá Iðunni fræðslusetri, í netfangi steinn@idan.is.