IÐAN fræðslusetur ehf.
IÐAN fræðslusetur ehf. varð til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu vorið 2006. Um áramótin 2006/2007 bættist síðan Fræðslumiðstöð bílgreina í hópinn. Eigendur IÐUNNAR eru: Samtök iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS, Félag bókagerðarmanna, FIT, VM, Bílgreinasambandið, Samtök ferðaþjónustunnar og Meistarafélag húsasmiða.
Hlutverk IÐUNNAR er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíl-, bygginga-og málmiðngreinum, prentiðnaði og matvæla- og veitingagreinum.
IÐAN hefur hlotið EQM (European Quality Mark) gæðavottunina sem er staðfesting á því að námskeið IÐUNNAR standast evrópskar kröfur um gæði fræðsluaðila.
Með stofnun IÐUNNAR er komið tækifæri til að þjóna þessum iðngreinum með miklu markvissari hætti en verið hefur.
Aðsetur: Skúlatún 2 og Gylfaflöt 19
Sími 590-6400, fax 590-6401
Aðalskrifstofur IÐUNNAR fræðslusetur eru að Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Bílgreinar IÐUNNAR fræðslusetur eru að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.
Um okkur
IÐAN hefur hlotið