Ferill raunfærnimats
Ferli raunfærnimatsins er þróað af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er það svohljóðandi:
1. Upplýsingum miðlað; skimunarviðtal á sér stað hjá náms- og starfsráðgjafa og þátttakendur skila gögnum sem staðfesta 60 mánaða vinnu í sínu fagi ásamt náms- og starfsferli.
2. Skráning í færnimöppu; þar er skjalfest almenn færni og sjálfsmat þátttakenda á faggreinum námsins.
3. Greiningarviðtal; þar hittast fagaðilar og þátttakandinn en honum til stuðnings er náms- og starfsráðgjafi.
4. Staðfesting á raunfærni; nú liggur fyrir hvort einstaklingurinn uppfylli þau skilyrði sem sett eru til viðmiðunar á loknum áfanga.
5. Mat og viðurkenning; viðurkenning er vottuð af samstarfsskóla verkefnisins. Í flest öllum tilvikum stendur eitthvað nám eftir og þá er unnið að námsáætlun fyrir þátttakandan til þess að hann getið lokið því námi sem eftir er og farið í sveinspróf.
6. Hvað stendur eftir - skólaganga; náms- og starfsráðgjafi skoðar stöðu hvers og eins og ráðleggur með næstu skref til þess að brautskrást úr skóla.
Leit
Mynd













